Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 09. júlí 2020 16:15
Magnús Már Einarsson
Guardiola vonar að menn verði ekki leiðir á hvor öðrum
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segir að það verði áskorun fyrir sig að halda áfram flugi á sínu fimmta tímabili með liðið.

Næsta tímabil verður það fimmta hjá Guardiola með Manchester City en hann hefur aldrei stýrt sama liðinu meira en fjögur tímabil.

„Ég hef líka efasemdir um það hvernig við tökumst á við fimmta tímabilið, hvernig við verðum ekki leiðir á hvor öðrum og hvernig við höldum viljanum til að vinna áfram saman," sagði Guardiola.

„Þetta er áskorun og við verðum að sjá hvað gerist. Ég er vongóður um að við getum gert þetta vel."
Athugasemdir
banner
banner
banner