Fotbolti.net
09.08.18 - 22:11
Ísak Máni Wíum

Fúsi: Auðvitað hef ég áhyggjur

Auglýsing
Fúsi: Auðvitað hef ég áhyggjur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„<i>Ég er bara mjög svekktur með leikinn, þetta var lélegur leikur af okkar hálfu og ég er bara hundfúll.</i>\"

Sagði Vigfús Arnar Jósepsson þjálfari Leiknis eftir 1-0 tap fyrir grönnum sínum í ÍR í dag.
Okkur gekk illa að byggja upp spil og fórum kannski full fljótt í örvæninguna og sóknarleikurinn var bara ekki neitt neitt. Við byrjuðum þennan leik mjög illa og vorum í lélegu jafnvægi. Við leyfðum þeim að eiga upphlaup á okkur sem við ætluðum ekki að leyfa þeim að eiga.\"

Leiknir hafa einungis fengið tvö stig úr síðustu fimm leikjum og síga neðar og neðar í töflunni og Fúsi hefur áhyggjur af stöðu mála.

Auðvitað hef ég áhyggjur, við erum búnir að vera í neðri hluta deildarinnar í allt sumar og falldraugurinn hefur alltaf verið að kitla okkur og það batnar ekki ástandið eftir þennan leik.\"

Næsti leikur Leiknis er gegn HK sem hafa verið illviðráðanlegir í allt sumar.

Það er nýtt verkefni, við þurfum bara að svekkja okkur í kvöld og mæta með skýran haus á æfingu á morgun og gera okkur klára fyrir leikinn gegn HK á þriðjudaginn.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.