Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 09. ágúst 2020 22:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tveir með kórónuveiruna hjá Atletico - Leikur á fimmtudag
Mynd: Getty Images
Tveir úr hópi spænska félagsins eru með Atletico Madrid. Þetta staðfestir félagið.

Þetta kom í ljós áður en félagið ferðaðist til Portúgal þar sem framundan eru 8-liða úrslitin, undanúrslitin og úrslitaleikur Meistaradeildarinnar. Atletico mun mæta RB Leipzig í 8-liða úrslitunum á fimmtudaginn.

Báðir einstaklingar eru núna í einangrun heima fyrir. Ekki hefur komið fram hvort um sé að ræða leikmenn eða starfsmenn.

Nú þurfa þeir sem ekki greindust með kórónuveiruna að fara í aðra skimun. Ekki hafa enn komið fram upplýsingar um að leikurinn á fimmtudag sé í hættu.

Atletico spilaði síðast þann 19. júlí þegar spænska úrvalsdeildin kláraðist.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner