þri 09. ágúst 2022 15:30
Elvar Geir Magnússon
Ten Hag sagður horfa til Gakpo
Mynd: EPA
Örvæntingarfull leit Manchester United að sóknarmanni hefur leitt Erik ten Hag að Cody Gakpo, vængmanni PSV Eindhoven.

Í apríl voru fréttir þess efnis að Arsenal hefði rætt við hollenska landsliðsmanninn um möguleg sumarskipti.

Þessi 23 ára leikmaður hefur einnig verið orðaður við Liverpool, Bayern München, Barcelona og fleiri félög.

Gakpo hefur skorað tvö mörk í sjö landsleikjum fyrir Holland en á síðasta tímabili skoraði hann 21 mark og átti 15 stoðsendingar í 47 leikjum.

PSV leikur í kvöld seinni leik sinn gegn Mónakó í forkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrri leikurinn endaði með jafntefli.

Manchester United er með alla anga úti á leikmannamarkaðnum og er nálægt því að tryggja sér franska miðjumanninn Adrien Rabiot frá Juventus.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner