Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 09. september 2021 20:19
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeild kvenna: Cloé tryggði Benfica áfram með þrennu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Cloé Lacasse var í byrjunarliði Benfica og setti þrennu í úrslitaleik um sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.

Benfica gerði jafntefli við Twente í Hollandi í fyrri leik liðanna en í kvöld sýndu Cloé og stöllur mikla yfirburði.

Cloé skoraði undir lok fyrri hálfleiks og lagði svo upp í upphafi síðari hálfleiks. Hún bætti tveimur mörkum við áður en hún fékk heiðursskiptingu á 83. mínútu.

Draumaleikur fyrir Cloé og verður áhugavert að fylgjast með drættinum í riðlakeppnina á mánudaginn.

Benfica 4 - 0 Twente (5-1 samanlagt)
1-0 Cloé Lacasse ('43)
2-0 N. Raysla ('47)
3-0 Cloé Lacasse ('50)
4-0 Cloé Lacasse ('72)

Juventus er þá einnig búið að tryggja sér sæti í riðlakeppninni eftir sigur á Vllaznia frá Albaníu.

Tékkneski framherjinn Andrea Staskova gerði eina mark leiksins í fyrri hálfleik og þægilegt fyrir Juve sem var við stjórn frá fyrstu mínútu.

Juve vann fyrri leikinn 2-0 og samanlagt því 3-0.

Juventus 1 - 0 Vllaznia (3-0 samanlagt)
1-0 Andrea Staskova ('34)
Athugasemdir
banner
banner