Fotbolti.net
09.10.20 - 15:30
Magnús Már Einarsson

Aouar ekki svekktur að fara ekki til Arsenal

Aouar ekki svekktur að fara ekki til Arsenal
Canon

Mynd: Getty Images

Houssem Aouar, miðjumaður Lyon, segist ekki vera svekktur að hafa ekki farið til Arsenal í sumar.

Aouar var sterklega orðaður við Arsenal en ekkert varð af félagaskiptum hans þangað.
„Er ég svekktur? Ég er andstæðan við það. Ég er heima, hjá félaginu sem ég elska með vinum mínum og fjölskyldu," sagði Aouar.

„Ég hef allt sem ég þarf og það gefur mér ennþá meiri hvatningu í að eiga gott tímabil og koma því aftur í toppsætin í Frakklandi."

Aouar er 22 ára gamall en líklega verður barist um hann næsta sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.