Hinrik mjög eftirsóttur - Orðaður við fimm félög í Bestu deildinni

Hinrik Harðarson.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Hinrik Harðarson.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Hinrik Harðarson, sóknarmaður Þróttar, er mjög eftirsóttur eftir tímabilið sem hann átti í Lengjudeildinni. Hann var valinn efnilegasti leikmaður deildarinnar hér á Fótbolta.net eftir að hafa skorað ellefu mörk og lagt upp sex mörk ofan á það.

TENGT EFNI
„Eðlilega er mikill áhugi á Hinriki" - Þróttarar vilja halda Lennon
Í slúðurpakka sem var birtur síðasta föstudag var Hinrik mjög áberandi en hann var þar orðaður við Víking, Val, Breiðablik, FH og ÍA í Bestu deildinni.
Samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net þá skrifaði Hinrik nýverið undir samning við dönsku umboðsskrifstofuna Elite Consulting Agency sem mun aðstoða hann við hans mál í fótboltanum.
Hinrik er nítján ára og getur bæði spilað sem fremsti maður sem og á kantinum. Hann hefur allan sinn feril verið hjá Þrótti. Hann skrifaði í lok síðasta árs undir samning við Þrótt sem rennur út eftir næsta tímabil.