Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 10. febrúar 2021 13:37
Elvar Geir Magnússon
Dóra María framlengir við Val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dóra María Lárusdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Val og spilar því sitt 18. tímabil í efstu deild fyrir félagið.

Dóra er 35 ára og lék fjórtán leiki fyrir Val í fyrra en liðið hafnaði í öðru sæti Pepsi Max-deildar kvenna.

Hún er leikjahæsta Valskonan frá upphafi, hefur spilað 310 leiki fyrir félagið og skorað 117 mörk, hefur sj0 sinnum orðið Íslandsmeistari og fimm sinnum bikarmeistari.

Þá hefur hún spilað 114 A-landsleiki og skorað 18 mörk fyrir Ísland.

Dóra María framlengir
Dóra María Lárusdóttir hefur skrifað undir nýjan samning og spilar því sitt 18. tímabil í efstu...

Posted by Valur Fótbolti on Miðvikudagur, 10. febrúar 2021

Athugasemdir
banner
banner
banner