Fotbolti.net
10.03.23 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Shaw og Casemiro þurfa á hvíld að halda"

„Shaw og Casemiro þurfa á hvíld að halda"
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United vann góðan sigur á Real Betis í Evrópudeildinni í gær en staðan var jöfn í hálfleik en frábær frammistaða í síðari hálfleik skilaði 4-1 sigri.

Paul Scholes var ásamt Owen Hargreaves sérfræðingur hjá BT Sport yfir leiknum en honum fannst leikmenn liðsins vera ansi þreyttir.

„Ég held að Ten Hag vilji ekki gera margar breytingar. Hann vill að leikmenn hafi ryþma en miðað við fjölda leikja sem þeir hafa spilað þá þurfa þurfa nokkrir á hvíld að halda. Mér fannst á Shaw eins og hann þurfti á hvíld að halda, Casemiro lítur út fyrir að þurfa á hvíld að halda," sagði Scholes.

„Þeir geta gefið nokkrum ungum leikmönnum smjörðþefinn af Evrópubolta og vonandi mun það gera þeim gott fyrir framtíðina."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.