Millwall 0 - 3 Swansea
0-1 Andre Ayew ('45 )
0-2 Jamal Lowe ('76 )
0-3 Jamal Lowe ('85 )
0-1 Andre Ayew ('45 )
0-2 Jamal Lowe ('76 )
0-3 Jamal Lowe ('85 )
Swansea sigraði Millwall örugglega 3-0 í fyrsta leik dagsins í ensku Championship deildinni.
Jamal Lowe, framherji Swansea, skoraði tvö mörk í síðari hálfleik en Andre Ayew hafði áður komið liðinu yfir.
Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem varamaður á 78. mínútu í liði Millwall.
Swansea stökk upp í 3. sæti deildarinnar eftir sigurinn. Tíu stig eru upp í Watford í 2. sætinu og líklegt að Swansea fari í umspil um sæti í úrvalsdeildinni. Millwall er aftur á móti í 9. sæti og tapið í dag gerir vonir um sæti í umspili litlar.
Athugasemdir