Fotbolti.net
10.04.21 - 16:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Daníel Leó og Jökull báðir í baráttu um að komast í umspil

Daníel Leó Grétarsson.

Daníel Leó Grétarsson.

Canon

Mynd: Getty Images

Daníel Leó Grétarsson og Jökull Andrésson voru í eldlínunni í neðri deildum Englands í dag.
Daníel Leó hefur verið mikið frá á þessu tímabili vegna meiðsla en hann var í byrjunarliðinu í dag þegar Blackpool gerði jafntefli á útivelli gegn Lincoln í C-deildinni.

Daníel Leó spilaði allann tímann en leikurinn endaði með 2-2 jafntefli. Blackpool er í fjórða sæti og er eins og staðan er núna á leið í umspil um sæti í B-deild.

Jökull hefur verið frábær í markinu hjá Exeter í D-deild Englands. Hann stóð vaktina í dag í 4-1 útisigri á Cambridge. Exeter er í áttunda sæti, einu stigi frá umspilinu þegar liðið á eftir að spila níu leiki.

Jökull er með efnilegustu markvörðum landsins en hann er aðeins 19 ára gamall.
Jökull spilaði í 4-1 útisigri.

Jökull spilaði í 4-1 útisigri.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.