Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   sun 10. maí 2026 23:18
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir dagsins: Zubimendi þristaður
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það fóru fjórir leikir fram í ensku úrvalsdeildinni í dag og er Sky Sports búið að gefa leikmönnum einkunnir úr þremur af þeim leikjum.

Mikilvægasti leikur dagsins fór fram á London Stadium þegar fallbaráttulið West Ham tók á móti titilbaráttuliði Arsenal. Leandro Trossard skoraði eina mark leiksins á 83. mínútu og þurftu gestirnir að hafa fyrir því að sigra þennan nágrannaslag.

Það endurspeglast í því að markvörðurinn David Raya var valinn maður leiksins hjá Sky fyrir að hafa haldið hreinu með góðum markvörslum.

Martín Zubimendi sem kom inn af bekknum í liði Arsenal var lélegasti leikmaður vallarins með 3 í einkunn. Hann kom inn á 28. mínútu og var skipt aftur af velli á 67. mínútu.

James Tarkowski var þá bestur á vellinum í 2-2 jafntefli Crystal Palace gegn Everton og var Jörgen Strand Larsen skúrkurinn í liði heimamanna. Hann klúðraði góðum færum og fær 4 í einkunn.

Að lokum var Zian Flemming maður leiksins í jafntefli hjá Burnley gegn Aston Villa. Ian Maatsen og Morgan Rogers þóttu lakastir á vellinum og fá þeir 4 í einkunn fyrir sinn þátt.

West Ham: Hermansen (6); Todibo (6), Disasi (6), Mavropanos (7); Wan-Bissaka (6), Soucek (6), Fernandes (7), Diouf (7); Bowen (6), Taty (5), Summerville (7)
Varamenn: Pablo (5), Wilson (7),

Arsenal: Raya (8); White (5), Saliba (7), Gabriel (8), Calafiori (7); Rice (7), Lewis-Skelly (6), Eze (6); Saka (6), Gyokeres (6), Trossard (7)
Varamenn: Zubimendi (3), Mosquera (6), Odegaard (7), Havertz (6), Madueke (6)



Crystal Palace: Henderson (6), Richards (7), Lacroix (6), Canvot (7), Munoz (7), Wharton (7), Kamada (7), Mitchell (6), Sarr (8), Johnson (5), Strand Larsen (4).
Varamenn: Mateta (7), Lerma (6).

Everton: Pickford (7), O'Brien (6), Tarkowski (8), Keane (6), Mykolenko (6), Iroegbunam (6), Garner (7), Ndiaye (7), Dewsbury-Hall (7), Rohl (6), Beto (7).
Varamaður: Barry (5)



Burnley: Weis (7), Walker (7), Esteve (7), Tuanzebe (7), Ugochukwu (7), Florentino (6), Tchaouna (8), Flemming (9), Pires (6), Hannibal (6).
Varamenn: Foster (6), Laurent (6), Amdouni (5)

Aston Villa: Martinez (5), Cash (5), Konsa (5), Mings (6), Maatsen (4), Tielemans (5), Lindelof (6), McGinn (6), Barkley (7), Rogers (4), Watkins (7).
Varamenn: Digne (5), Buendia (5)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner