10.06.20 - 20:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Spá þjálfara í 2. deildinni: 7. sæti

Mynd frá í febrúar 2019.

Mynd: Jón Örvar Arason

Marki fagnað á síðustu leiktíð.

Mynd: Víðir Garði

Hólmar Örn Rúnarsson í leik með Keflavík sumarið 2018.

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Pawel Grudzinski í leik með Njarðvík í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson

Jón Gunnar Sæmundsson (2015).

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Mynd frá í febrúar 2019.

Mynd: Jón Örvar Arason
Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í 2. deild í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla þjálfara liðanna í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin því stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði.
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. Víðir 56 stig
8. Kári 50 stig
9. Völsungur 47 stig
10. Dalvík/Reynir 40 stig
11. Fjarðabyggð 39 stig
12. KF 13 stig
Lokastaða í fyrra: Víðir endaði í 4. sæti, sex stigum frá því að fara upp um deild. Í 16. umferð var liðið tveimur stigum á eftir Vesta og þremur stigum á eftir toppliði Leiknis. Fjórði besti árangur á heimavelli og fjórði besti á útivelli, vantaði bara herslumuninn um miðbik seinni hluta mótsins til að fara upp.
Þjálfarinn: Hólmar Örn Rúnarsson er spilandi þjálfari liðsins og honum til aðstoðar er Guðjón Árni Antoníusson. Báðir goðsagnir hjá Keflavík og hafa heilmikla reynslu úr efstu deild. Hólmar skoraði tvö mörk í bikarnum um daginn og hefur enn sitthvað fram að færa inni á vellinum. Hólmar tók við liðinu um haustið 2018 og er því að fara inn í sitt annað tímabil.
Álit sérfræðings
Rafn Markús Vilbergsson og Úlfur Blandon eru sérfræðingar Fótbolta.net fyrir Lengjudeildina og 2. deild karla. Rafn gefur álit sitt á Víði.
„Miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Víðis frá tímabilinu í fyrra þar sem liðið hefur misst átta leikmenn sem spiluðu 18 leiki eða fleiri í deildinni. Þar munar mikið um Ara Stein Guðmundsson, Atla Frey Ottesen Pálsson og Helga Þór Jónsson sem skoruðu 29 af 40 mörkum Víðis í deildinni. Einnig er Cristian Martinez Liberato, fyrrum markmaður KA og Víkings Ó., horfinn á braut. Víðismenn ætla að leggja traust sitt á óreynda markmanninn Erik Oliversson, 22 ára, sem er uppalinn í Garðinum. Víðir hefur bætt við sig tveimur erlendum framherjum, Pepelu Vidal og Guyon Philips sem eiga að sjá um markaskorun liðsins. Vidal skoraði 11 mörk með Fjarðabyggð í fyrra á meðan Philips var duglegur að skora í norsku C-deildinni. Pawel Grudzinski kom frá Njarðvík en hann er bakvörður sem einnig getur leyst ýmsar aðrar stöður á vellinum. Reynslumikill leikmaður með yfir hundrað mótsleiki í deild og bikar á Íslandi. Fyrir er Hólmar Örn Rúnarrsson þjálfari Víðis sem er potturinn og pannan í öllu spili Víðismanna og Stefan Spavic, fyrirliði Víðis, sem var mjög mikilvægur hlekkur í vörn liðsins í fyrra, það mun reyna mikið á hann í sumar. Hann meiddist aftan í læri í æfingaleik gegn Reyni S. fyrir stuttu sem vonandi fyrir hann og liðið verður ekki til vandræða. Varnarmaðurinn Jón Gunnar Sæmundsson er kominn á fullt aftur eftir að hafa tekið því rólega síðustu tvö ár, hann getur orðið sterk viðbót fyrir Víði ef hann er í góðu formi."
„Leikmannahópurinn er þunnur og má liðið við litlum skakkaföllum en fyrrnefndir leikmenn þurfa að bera liðið uppi og aðstoða yngri leikmenn liðsins í baráttunni, en þeir strákar koma aðallega úr Garðinum og Keflavík. Miklar líkur eru á að miðjumaður frá Spáni bætist í leikmannahópinn á næstu dögum. Víðir átti gott tímabil í fyrra þar sem liðið var lengi vel í séns að komast upp. Tímabilið í ár getur orðið snúnara þar sem miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópnum og stefnir i að liðið fari inn í mótið með slakari og óreyndari mannskap en í fyrra. Heimavöllurinn þarf að vera sterkur líkt og í fyrra en það verður gaman fyrir öll lið í deildinni að koma á Nesfisk-völlinn, einn allra besta grasvöll landsins."
Lykilmenn: Stefan Spavic, Pawel Grudzinski, Hólmar Örn Rúnarrsson
Gaman að fylgjast með: Miðjumaðurinn Hreggviður Hermannsson, ungur strákur sem er fæddur árið 2000. Gann er efnilegur leikmaður, sem vert að fylgjast með í sumar. Einnig verður gaman að sjá hversu vel Sigurbergi Bjarnasyni mun ganga í sumar en tvenn krossbandaslit hafa seinkað framgangi hans á vellinum.
Hólmar Örn Rúnarsson, þjálfari Víðis:
„Þessi spá kemur mér ekkert sérlega á óvart. Ég held að okkur séð spáð í 7. sætið vegna þess að það eru mörg lið í þessari deild sem eru með vel mönnuð lið og hafa verið dugleg að sækja sér sterka leikmenn. Einnig tel ég að það spili inn í að við höfum misst mikið af leikmönnum sem gerðu vel fyrir okkur á síðustu leiktíð. Mér líst vel á deildina þar sem hún er öll að styrkjast. Flottir leikmenn að detta inn í þessa deild, reyndir þjálfarar og umgjörðin er alltaf að verða betri hjá félögunum. Markmið Víðis eru stærri og meiri en að enda í 7.sæti það er klárt svo kemur í ljós hvort það sé innistæða fyrir því."
Er leikmannahópurinn klár fyrir tímabilið?
„Leikmannahópurinn er ekki alveg klár við eigum von á 2-3 leikmönnum."
Komnir:
Pawel Grudzinski frá Njarðvík
Pepelu Vidal frá Spáni
Guyon Philips frá Noregi
Hreggviður Hermansson láni frá Keflavík
Eyþór Atli Aðalsteinsson frá Keflavík
Birkir Blær Laufdal Kristinsson frá HK
Elmar Elí Arnarsson frá Njarðvík
Sigurður Ingi Bergsson frá Keflavík
Kormákur Andri Þórsson frá Reyni
Farnir:
Atli Freyr Ottesen í Njarðvík
Jón Tómas Rúnarsson í Njarðvík
Ási Þórhallsson í Reynir
Medhi Hadroui ???
Cristian Martinez á Spáni
Helgi Þór Jónsson ???
Ari Steinn Guðmundsson Keflavík
Gylfi Öfjörð í GG
Fyrstu þrír leikir Víðis:
20. júní Víðir - Kórdrengir (Nesfisk-völlurinn)
27. júní KF - Víðir (Ólafsfjarðarvöllur)
4. júlí Fjarðabyggð - Víðir (Eskjuvöllur)