Fotbolti.net
10.06.25 - 07:20
Ívan Guðjón Baldursson

Ótrúlegur Haaland með 42 mörk í 43 landsleikjum

Ótrúlegur Haaland með 42 mörk í 43 landsleikjum
Canon

Mynd: EPA

Erling Braut Haaland var á sínum stað í byrjunarliði Noregs sem heimsótti Eistland í undankeppni Evrópuþjóða fyrir HM í gærkvöldi.
Haaland skoraði eina mark leiksins í 0-1 sigri til að halda í fullt hús stiga fyrir Noreg, sem er með 12 stig eftir 4 umferðir.

Norska landsliðið er með mikið af sterkum leikmönnum innanborðs en Haaland virðist vera í sérflokki. Eftir þetta mark gegn Eistlandi er framherjinn stóri búinn að skora 42 mörk í 43 landsleikjum, auk þess að gefa 4 stoðsendingar.

Haaland er búinn að skora átta mörk og gefa eina stoðsendingu í síðustu sex keppnisleikjum og virðist vera óstöðvandi um þessar mundir.

Hann er með hágæðaleikmenn með sér í byrjunarliði Noregs þar sem má meðal annars nefna Alexander Sörloth, Martin Ödegaard og Julian Ryerson.

Þar að auki má finna öfluga leikmenn á borð við Sander Berge, Oscar Bobb, Marcus Pedersen, Jörgen Strand Larsen og Antonio Nusa í sterkum og efnilegum landsliðshópi Norðmanna. Þá er ekki verið að telja leikmenn eins og Kristian Thorstvedt, Hugo Vetlesen og Andreas Hanche-Olsen sem eru utan hóps sem stendur.

Norðmenn sigruðu Ítali sannfærandi 3-0 fyrir helgi og gætu valdið miklum usla á HM í Norður-Ameríku.
Ótrúlegur Haaland með 42 mörk í 43 landsleikjum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.