Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 10. júlí 2020 21:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Championship: Fulham upp í 3. sætið - Líflína fyrir Luton
Mitrovic var á skotskónum í kvöld.
Mitrovic var á skotskónum í kvöld.
Mynd: Getty Images
Tveir leikir fóru í kvöld fram í ensku Championship-deildinni. Fulham og Luton sigruðu leikina báða með tveimur mörkum og án þess að fá á sig mark.

Sonny Bradley og Elliot Lee sáu til þess að Luton fór upp úr neðsta sæti deildarinnar. Luton er núna þremur stigum frá öruggu sæti þegar liðið á þrjá leiki eftir. Huddersfield, andstæðingur Luton í kvöld, er þremur stigum fyrir ofan Luton í 6. neðsta sæti.

Í seinni leik dagsins sigraði Fulham lið Cardiff með mörkum Aleksandar Mitrovic og Josh Onomah. Fulham fer með sigrinum upp í 3. sæti og er fjórum stigum frá WBA og fimm stigum frá toppliði Leeds. Brentford getur endurheimt 3. sætið á morgun með stigi eða sigri.

Huddersfield 0 - 2 Luton
0-1 Sonny Bradley ('49 )
0-2 Elliot Lee ('71 )

Fulham 2 - 0 Cardiff City
1-0 Aleksandar Mitrovic ('35 , víti)
2-0 Josh Onomah ('66 )
Athugasemdir
banner