Valur 3 - 1 ÍBV
1-0 Elín Metta Jensen ('5 )
2-0 Elín Metta Jensen ('8 )
3-0 Ída Marín Hermannsdóttir ('10 )
3-1 Margrét Íris Einarsdóttir ('93)
Lestu nánar um leikinn.
1-0 Elín Metta Jensen ('5 )
2-0 Elín Metta Jensen ('8 )
3-0 Ída Marín Hermannsdóttir ('10 )
3-1 Margrét Íris Einarsdóttir ('93)
Lestu nánar um leikinn.
Valur er fyrsta liðið sem tryggir sér sæti í 8-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna eftir að hafa sigrað ÍBV í kvöld.
Öll þrjú mörk Vals komu á fyrstu tíu mínútum leiksins. Markamaskínan Elín Metta Jensen skoraði fyrstu tvö mörkin og það var svo Ída Marín Hermannsdóttir sem skoraði þriðja markið.
„Mark - Snörp sókn Vals upp hægra meginn endar með marki frá Ídu sem hún tekur frákastið eftir góða markvörslu frá Guðnýju frá Elínu," skrifaði Sverrir Örn Einarsson í beinni textalýsingu þegar hann lýsti þriðja marki Vals.
ÍBV skoraði svo „Sárabótarmark" eins og Sverrir orðaði það í uppbótartíma og var þar að verki Margrét Íris Einarsdóttir.
Fimm aðrir leikir í 16-liða úrslitunum fara fram í kvöld og verður fylgst með þeim í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net. Þrír þeirra eru þegar farnir af stað!
Athugasemdir