Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 10. ágúst 2020 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mun David Silva skrifa undir hjá Lazio í dag?
David Silva.
David Silva.
Mynd: Getty Images
David Silva er sagður ætla að skrifa undir þriggja ára samning hjá Lazio í dag.

Fjöldi ítalskra fjölmiðla fjallar um þetta.

Hinn 34 ára gamli Silva er að yfirgefa Manchester City eftir glæstan feril á Englandi. Hann fer frá félaginu sem einn besti leikmaður í sögu City og núna mun hann væntanlega klára ferilinn á Ítalíu. Hann fékk líka fyrirspurnir frá Bandaríkjunum en ætlar að takast á við nýja áskorun á Ítalíu.

Spánverjinn mun klára Meistaradeildina með Man City í þessum mánuði og róa svo á önnur mið.

Talið er að hann fái góð laun á Ítalíu, sem og einkaþotu fyrir ferðalög til Spánar og verður hann með einkabílstjóra í Róm.

Lazio hafnaði í fjórða sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar og verður í Meistaradeildinni á næsta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner