Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   þri 10. september 2019 23:31
Brynjar Ingi Erluson
Mane ánægður hjá Liverpool - „Bestu stuðningsmenn í heimi"
Sadio Mane er í skýjunum með að vera hjá Liverpool
Sadio Mane er í skýjunum með að vera hjá Liverpool
Mynd: EPA
Senegalski sóknarmaðurinn Sadio Mane er ekki farinn að hugsa sér til hreyfings en hann segist afar ánægður hjá Liverpool.

Mane hefur síðustu ár verið einn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar en á síðasta tímabili var hann markahæsti maður deildarinnar ásamt Pierre-Emerick Aubameyang og Mohamed Salah.

Hann var þá í sigurliði Liverpool í Meistaradeildinni og eru spænsku risarnir Barcelona og Real Madrid þegar farin að horfa til hans.

Mane er þó ekki á þeim buxunum að fara og segist afar ánægður í Liverpool.

„Orð fá því ekki lýst hversu ánægður ég er að vera í Liverpool og þessari fjölskyldu," sagði Mane.

„Við eigum bestu stuðningsmenn í heimi og ég er svo þakklátur fyrir stuðninginn. Þetta er ekki bara frábært fyrir mig heldur allt liðið og þetta hvetur okkur áfram."

„Þetta heldur okkur hungruðum og gerir okkur betri. Það vita allir markmiðið fyrir tímabilið og það er að vinna ensku úrvalsdeildina en við við viljum líka vinna Meistaradeildina aftur,"
sagði Mane í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner