Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 10. september 2020 22:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
4. deild: Jafnt í síðasta leik sumarsins hjá Vatnaliljum og Uppsveitum
Úr leik hjá Vatnaliljum árið 2018.
Úr leik hjá Vatnaliljum árið 2018.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Vatnaliljur 3 - 3 Uppsveitir
0-1 Helgi Valdimar Sigurðsson ('11)
1-1 Kamil Piekarski ('25)
2-1 Kamil Piekarski ('64)
2-2 Kristján Valur Sigurjónsson ('71)
2-3 Máni Snær Benediktsson ('77)
3-3 Óðinn Ómarsson ('88)

Vatnaliljur og Uppsveitir léku sinn síðasta leik í 4. deildinni í sumar í kvöld þegar liðin áttust við í Fagralundi.

Leikurinn var mjög fjörugur og skemmtilegt fyrir bæði lið að enda fótboltasumarið á leik eins og þessum.

Staðan var 1-1 eftir fyrri hálfleik. Kamil Piekarski kom Vatnaliljum yfir á 64. mínútu sínu en Uppsveitir jöfnuðu og komust svo yfir. Vatnaliljur jöfnuðu metin í 3-3 þegar tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Vatnaliljur hafna í sjötta sæti A-riðils og Uppsveitir í því sjöunda.
Athugasemdir
banner
banner