Fotbolti.net
10.09.20 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Daníel Ingvar á reynslu hjá Stoke City

Daníel Ingvar á reynslu hjá Stoke City
Canon

Mynd: Haukar

Daníel Ingvar Ingvarsson, leikmaður 3. flokks Hauka, var á dögunum á reynslu hjá enska félaginu Stoke City sem leikur í Championship deildinni þar í landi.
Daníel tók þátt í æfingum með U19 liði Stoke sem var í toppbaráttu norðurriðils Premier League U19 á síðasta tímabili og kom inn á síðustu 30 mínúturnar í leik gegn Sheffield United sem tapaðist 1-3.

Hinn 16 ára gamli Daníel var að sjálfsðögðu afar ánægður með ferðina enda mikil upplifun að æfa með jafn sögufrægu félagi og Stoke City er í enskum fótbolta, segir á heimasíðu Hauka.

Daníel samdi við knattspyrnudeild Hauka síðastliðið vor en hann hefur einnig spilað með 2. flokki félagsins í sumar og æft með meistaraflokki.

Heimild: Heimasíða Hauka

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.