Lyon í Frakklandi hefur engan áhuga á að skipta á Houssem Aouar og Matteo Guendouzi hjá Arsenal.
Þetta staðfesti Juninho, yfirmaður knattspyrnumála Lyon, í gær en hann ræddi við Edu sem sinnir sama starfi hjá enska félaginu.
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, er aðdáandi Aouar og hefur skoðað þann möguleika að fá leikmanninn í sumar.
Arsenal ku hafa boðið Lyon miðjumanninn Guendouzi í skiptum en það er ekki eitthvað sem franska liðið hefur áhuga á.
„Samband okkar Edu er mjög gott. Við ræddum saman í símann. Mikel Arteta er mikill aðdáandi Aouar," sagði Juninho.
„Nafn Guendouzi var nefnt í símtalinu, hann er frábær leikmaður en hentaro kkur ekki. Við höfum engan áhuga á því og enduðum símtalið."
Athugasemdir