Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
   lau 10. september 2022 17:23
Kári Snorrason
Davíð Smári: Alveg klár á því að við erum eitt af 3-4 bestu liðunum í þessari deild
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kórdrengir tóku á móti Aftureldingu fyrr í dag í Safamýrinni, leikar enduðu 4-0 fyrir Kórdrengjum, Davíð Smári kom mjög sáttur í viðtal eftir leik.


Lestu um leikinn: Kórdrengir 4 -  0 Afturelding

„Ég er hrikalega sáttur með sigurinn, hinsvegar fannst mér við getað verið aðeins betri. Mér fannst við alveg hræðilegir fyrstu 20 mínúturnar, við tókum okkur langan tíma að koma okkur inn í leikinn. Sem betur fer voru þeir ekkert betri en við, við vorum heppnir þar. Eftir um 25 mínútur fannst mér við taka yfir leikinn og vera sterkari aðilinn allt til enda."

Kórdrengir hafa unnið 4 af síðustu 5 leikjum sínum og eru í 5. sæti deildarinnar.

„Það voru hlutir sem voru ekki alveg í lagi hjá okkur í byrjun tímabils við vorum lengi í gang og náðum aldrei að komast á neitt run og þessháttar, ákveðið aðstöðuleysi sem spilaði inn í þar."

„Ég er alveg klár á því að við erum eitt af 3-4 bestu liðunum í þessari deild. Hlutirnir bara féllu ekki fyrir okkur í ár, smá stöngin út það er bara einn leikur eftir og væri gaman ef við myndum ná að lyfta okkur einu sæti ofar."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner