Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 10. október 2019 17:45
Magnús Már Einarsson
Varane: Pössum sérstaklega föst leikatriði hjá Íslandi
Icelandair
Varane í leiknum gegn Íslandi í mars.
Varane í leiknum gegn Íslandi í mars.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Raphael Varane, varnarmaður franska landsliðsins, verður með fyirliðabandið gegn Íslandi á morgun í fjarveru aðalfyrirliðans Hugo Lloris.

Ísland hefur átt mjög góðu gengi að fagna á Laugardalsvelli í undankeppnum undanfarin ár. Varane var spurður út í þann árangur á fréttamannafundinum í dag.

„Það skiptir auðvitað miklu máli. Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að það er erfitt að koma hingað. Andstæðingur okkar er góður á heimavelli og við búumst við erfiðum leik," sagði Varane en hann var spurður að því hvort hann búist við mikilli baráttu í leiknum annað kvöld.

„Við búumst við mikilli baráttu en við munum leggja áherslu á að spila góðan fótbolta með hröðum sendingum. Við viljum láta spilið ganga hratt þegar við erum með boltann. Við munum passa föst leikatriði sérstaklega hjá íslenska liðinu. Aukaspyrnur, hornspyrnur, innköst og þess háttar."

Franskur fjölmiðlamaður spurði Varane að því hvort hann óttist veðrið í leiknum á morgun en hann segist ekki gera það. „Við þurfum að aðlagast þessu. Auðvitað er kalt og vindur og það gæti aukið á erfiðleikastuðul leiksins. Við erum tilbúnir í það," sagði Varane.

Lykilmenn eins og Kylian Mbappe, Lloris og Paul Pogba eru á meiðslalistanum hjá Frökkum. „Auðvitað eru þetta mikilvægir leikmenn og þeirra er sárt saknað. Það breytir ekki öllu hjá okkur. Við breytum uppstillingunni ekki. Það kemur maður í manns stað," sagði Varane.

Olivier Giroud verður væntanlega fremsti maður hjá Frökkum á morgun en hann hefur lítið spilað með Chelsea á tímabilinu.„Giroud leggur alltaf mjög hart að sér. Hann er duglegur og í góðu formi. Þjálfarinn ákveður hvort hann spilar eða ekki en ég hef engar áhyggjur af honum," sagði Varane.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner