10.10.26 - 17:45
Sverrir Örn Einarsson
Linta: Enginn með rétta hugarfarið í að spila
Auglýsing

Aleksandar Linta

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aleksandar Linta

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aleksandar Linta þjálfari ÍBV var niðurlútur í leikslok eftir 1-0 tap Eyjamanna gegn Þór á Akureyri í dag þegar Fótbolti.net náði af honum tali. Skal engan undra enda þýðir tapið að Eyjamenn eiga ekki lengur möguleika á að halda sæti sínu í Bestu deildinni og eru þar með fallnir í Lengjudeildina. Um tilfinningar sínar í leikslok sagði Linta.
Lestu um leikinn: Þór 1 - 0 ÍBV
„Auðvitað er ég ekki ánægður, það er engin ánægður þegar hann tapar. Ég átti ekki von á svona frammistöðu og þá sérstaklega í fyrri hálfleik sem ég held að sé megin ástæða þess að við töpuðum hér í dag. Orkustigið var ekki gott í fyrri hálfleik þar sem við gerðum mörg mistök. Við vorum í raun ekki með einn leikmann á vellinum sem var með hugarfarið í að reyna að spila. Síðari hálfleikur var betri, við vorum orkumeiri og sóknarleikurinn var skipulagðari en það var bara ekki nóg.“
Tapið þýðir sem áður sagði að ÍBV er fallið. Það var auðheyranlegt að Linta tekur það sárt að liðinu hafi ekki tekist að bjarga sér.
„Auðvitað er ég miður mín fyrir hönd félagsins og leikmanna. Þetta var góð vegferð, lokaniðurstaðan er auðvitað ekki góð en allt annað hefur verið í lagi.“
Umdeilt atvik varð í fyrri hálfleik þegar Aron Birkir markvörður Þórs lenti í samstuði við Aron Vokes sóknarmann ÍBV. Eyjamenn kölluðu eftir broti og jafnvel rauðu spjaldi á Aron Birki en Vilhjálmur Alvar dómari leiksins dæmdi ekkert og lét leik halda áfram. Hvernig horfði það atvik við Linta?
„VIð höfum lent í þessum aðstæðum margsinnis í sumar og aldrei hef ég talað um það. Aldrei fellur það okkur megin og mér finnt þetta rangt. Margar svona ákvarðanir í sumar hafa fallið gegn okkur en svona er það bara.“
Allt viðtalið við Linta má sjá í spilaranum hér að ofan.