Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 10. nóvember 2020 19:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Endurkoma Gunnersaurus gleður Özil
Mynd: Getty Images
Gunnersaurus, sneri aftur á Emirates leikvanginn í dag eftir hlé. Gunnersaurus er lukkudýr Arsenal. Gunnersaurus er risaeðla sem hefur haldið uppi stemningunni á heimaleikjum liðsins.

Mesut Özil, sem er vægast sagt í kuldanum hjá Arsenal, bauðst í kjölfarið á uppsögn Jerry Quy, til að borga laun þess sem væri í búningi lukkudýrsins. Jerry Quy hafði verið í því starfi í 27 ár áður en hann var einn af 55 starfsmönnum sem missti vinunna í byrjun október.

Sjá einnig:
Özil lét Arsenal líta heimskulega út

Gunnersaurus birti af sér mynd á Twitter í dag og Özil skrifaði í tengdri færslu. „Glaður að sjá þig aftur þar sem þú átt að vera."




Athugasemdir
banner
banner
banner