Fotbolti.net
11.02.21 - 15:55
Magnús Már Einarsson

Neymar frá í fjórar vikur - Ekki með gegn Barcelona

Neymar frá í fjórar vikur - Ekki með gegn Barcelona
Canon

Mynd: Getty Images

PSG hefur staðfest að Neymar verði frá keppni næstu fjórar vikurnar vegna meiðsla. Brasilíumaðurinn meiddist gegn Caen í gærkvöldi.

Neymar missir því af fyrri leiknum í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar gegn gömlu félögunum í Barcelona síðar í þessum mánuði.

Þá er óvíst hvort Neymar verði með í síðari leiknum þann 10. mars.
Systir Neymar á afmæli 11. mars en hann hefur undanfarin ár verið í leikbanni í kringum afmælisdaga hennar til að geta mætt í afmælisveisluna og skemmt sér.

Neymar verður ekki í leikbanni í kringum afmælið í ár en meiðslin gætu þó orðið til þess að hann verði í fríi og geti farið í afmælisveisluna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.