Fotbolti.net
11.04.21 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson

Byrjunarlið Burnley og Newcastle: Jói byrjar - Wilson á bekknum

Byrjunarlið Burnley og Newcastle: Jói byrjar - Wilson á bekknum
Canon

Mynd: Getty Images

Jóhann Berg Guðmundsson er í byrjunarliði Burnley sem tekur á móti Newcastle United í fyrsta leik dagsins í enska boltanum.
Sean Dyche gerir eina breytingu í liði Burnley eftir nokkuð magnað tap gegn Southampton í síðustu umferð, þar sem Burnley komst í tveggja marka forystu á útivelli en tapaði leiknum 3-2.

Nick Pope dettur úr liðinu vegna axlarmeiðsla og mun Bailey Peacock-Farrell verja markið í dag.

Steve Bruce gerir tvær breytingar eftir jafntefli gegn Tottenham þar sem Federico Fernandez og Ciaran Clark koma inn í varnarlínuna. Tvær af stjörnum Newcastle, þeir Callum Wilson og Allan Saint-Maximin, byrja á bekknum.

Bæði lið eru fyrir ofan fallsvæðið. Burnley er með 33 stig eftir 30 umferðir, Newcastle er með 29 stig.

Burnley: Peacock-Farrell, Pieters, Tarkowski, Mee, Lowton, Guðmundsson, Brownhill, Westwood, McNeil, Wood, Vydra
Varamenn:, Taylor, Cork, Stephens, Bardsley, Nartey, Dunne, Richardson, Mumbongo

Newcastle: Dubravka, Murphy, Fernandez, Clark, Dummett, Shelvey, Ritchie, S Longstaff, Joelinton, Almiron, Gayle
Varamenn: Darlow, Saint-Maximin, Lewis, Hendrick, Manquillo, Willock, Carroll, Krafth, Wilson

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.