Maðurinn sem hljóp nakinn inn á í leik Granada og Manchester United í Evrópudeildinni síðasta fimmtudag faldi sig á vellinum í 14 klukkustundir að sögn lögreglu.
Í stöðunni 0-0 í fyrri hálfleik hljóp nakinn maður inn á völlinn og tók á sprett.
„Þessi meistari leit vel út, virkaði í góðu standi, Covid standi, sýnum þetta kannski hægt í hálfleik," sagði Guðmundur Benediktsson sem var að lýsa leiknum á Stöð 2 Sport, eftir þessa uppákomu.
Maðurinn heitir Olmo Garcia en hann er þekktur fyrir það í Granada að ganga um nakinn.
Manchester United vann leikinn 1-0 og er í góðri stöðu fyrir seinni leikinn á Old Trafford.
Athugasemdir