Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 11. maí 2021 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Bayern í viðræðum við Coman um nýjan samning
Kingsley Coman gæti fengið nýjan fimm ára samning
Kingsley Coman gæti fengið nýjan fimm ára samning
Mynd: Getty Images
Bayern München er í samningaviðræðum við franska vængmanninn Kingsley Coman. Félagið vill semja til næstu fimm ára.

Coman er 24 ára gamall og kom til Bayern frá Juventus árið 2017 en samningur hans gildir til ársins 2023.

Hann þekkir ekkert annað en að vinna titla en hann hefur unnið deildartitil á hverju ári síðan hann gekk upp í meistaraflokk.

Samkvæmt fréttum frá Þýskalandi er Bayern í viðræðum við Coman um nýjan fimm ára samning en Coman hafnaði fyrsta boði.

Bayern bauð honum 12 milljónir evra í árslaun en Coman vill fá 16-17 milljónir evra.
Athugasemdir
banner
banner
banner