Damir semur við Breiðablik út árið (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eins og Fótbolti.net greindi frá á sunnudag er Damir Muminovic búinn að skrifa undir samning við Breiðablik.
Samningur hans hefur verið skráður inn á heimasíðu KSÍ og þar segir að samningurinn taki gildi 1. júlí og gildi út árið. Breiðablik hefur ekki enn greint frá endurkomu Damirs í Kópavoginn.
Uppfært 15:52: Breiðablik hefur staðfest tíðindin eins og sjá má hér neðst.

TENGT EFNI
Damir snýr aftur í Breiðablik
Damir er ekki kominn með félagaskipti en það má gera ráð fyrir að hann fái leikheimild um leið og félagaskiptaglugginn opnar þann 17. júlí og geti því verið til taks gegn Vestra þann 19. júlí.
Damir, sem er 35 ára, hefur verið einn besti miðvörður Bestu deildarinnar síðustu ár. Hann varð Íslandsmeistari með Blikum í fyrra og hélt í kjölfarið til Brúnei þar sem hann spilaði með DPMM í singapúrsku deildinni fyrri hluta þessa árs.