Fotbolti.net
11.06.26 - 20:02
Brynjar Ingi Erluson

Sögulegt augnablik í Mexíkó

Julian Quinones fagnar opnunarmarkinu

Julian Quinones fagnar opnunarmarkinu

Canon

Mynd: EPA

Julian Quinones, landsliðsmaður Mexíkó, skoraði sögulegt opnunarmark á heimsmeistaramótinu í kvöld.
Quinones nýtti sér klaufaleg mistök Suður-Afríku. Erik Lira stal boltanum af varnarmanninum, boltinn fór út á Quinones sem skoraði með laglegu skoti.

Alltaf sérstök stund að skora opnunarmark HM, en um leið var þetta í fyrsta sinn sem þjóð í CONCACAF-fótboltasambandinu gerir opnunarmarkið.

Um leið var þetta þriðja fljótasta mark Mexíkó í keppninni og það fljótasta síðan Philipp Lahm skoraði fyrir Þýskaland gegn Kosta Ríka á HM 2006, en hann gerði mark sitt eftir sex mínútur.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.