Kristianstad vann magnaðan sigur á Rosengård í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Elísabet hefur stýrt Kristianstad í 12 ár og hefur henni ekki tekist á þessum 12 árum að ná í stig gegn Rosengård á útivelli - fyrr en í dag.
„Ég hef verið að bíða eftir þessu í 12 ár," sagði Elísabet í samtali við Aftonbladet eftir sigurinn í dag.
Kristianstad vann leikinn 2-1. Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn fyrir Rosengård en Sif Atladóttir og Svava Rós Guðmundsdóttir voru ekki með Kristianstad. Sif er nýbúin að eignast barn og Svava er að glíma við meiðsli.
Rosengård er núna í öðru sæti, fjórum stigum frá toppliði Gautaborgar, þegar fjórar umferðir eru eftir. Kristianstad er í þriðja sæti, fjórum stigum á eftir Rosengård, en eins og staðan er núna þá er Kristianstad á leið í Meistaradeildina á næstu leiktíð.
Það fóru fjórir aðrir leikir fram í deildinni í dag. Anna Rakel Pétursdóttir spilaði allan leikinn fyrir Uppsala í 3-0 tapi gegn Gautaborg og Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn fyrir Djurgården í 2-0 tapi gegn Örebro.
Uppsala er á botni deildarinnar átta stigum frá öruggu sæti og Djurgården er í áttunda sæti, fjórum stigum frá fallsæti.
Leverkusen með góðan sigur
Sandra María Jessen var allan tímann á bekknum hjá Bayer Leverkusen þegar liðið vann flottan 3-0 sigur á Werder Bremen í þýsku úrvalsdeildinni. Leverkusen er í fimmta sæti með tíu stig eftir sex leiki.
Athugasemdir