Fotbolti.net
11.11.19 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Guardiola aldrei byrjað tímabil jafn illa og núna

Guardiola aldrei byrjað tímabil jafn illa og núna
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City tapaði gegn Liverpool í stórleik í ensku úrvalsdeildinni í gær, sunnudag.
City, meistarar síðustu tveggja ára á Englandi, fara inn í landsleikjahléið í fjórða sæti með 25 stig, níu stigum frá toppliði Liverpool.

Tölfræðimeistararnir hjá Opta segja frá því að lið undir stjórn Pep Guardiola hafi aldrei byrjað tímabil jafn illa stigalega séð.

Guardiola hefur á sínum stjóraferli þjálfað varalið Barcelona, aðallið Barcelona, Bayern München og Manchester City.

Man City tekur á móti Chelsea eftir landsleikjahléið.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.