Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 11. nóvember 2020 21:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Blackpool áfram í pizzabikarnum - Padova steinlá
Emil Hallfreðsson
Emil Hallfreðsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Blackpool er komið í 32-liða úrslit í neðrideildarbikarnum sem margir kalla enn málningabikarinn eða framrúðubikarinn. Nú er aðalstyrktaraðili keppninnar pizzakeðjan Papa John's.

Blackpool vann U21 lið Leeds, 3-0, í 3. umferð riðlakeppninnar og er því komið áfram. Daníel Leó Grétarsson hefur leikið síðustu leiki Blackpool en hann var ekki með í dag.

Padova, lið Emils Hallfreðssonar, var taplaust frá því í fyrstu umferð fyrir leikinn í dag gegn Perugia. Emil var í byrjunarliðinu en fór af velli á 71. mínútu fyrir Ronaldo. Þá var staðan 2-0 fyrir Perugia. Á 85. mínútu fékk Ronaldo rautt spjald og á 86. mínútu kom þriðja mark Perugia.

Perugia náði með þessu toppsætinu af Padova. Bæði lið eru með 20 stig eftir tíu umferðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner