Esbjerg er tiltölulega óvænt fallið úr leik í danska bikarnum. Liðið lá 1-0 á útivelli gegn Nyköbing í 32-liða úrslitum keppninnar. Ólafur Helgi Kristjánsson er þjálfari liðsins og Andri Rúnar Bjarnason er á mála hjá liðinu. Andri Rúnar lék ekki með í dag.
                
                
                                    Lyngby vann 0-9 útisigur á Slagelse. Frederik Schram varði mark Lyngby í leiknum og hélt hreinu. Þetta var fyrsti leikur Frederik á leiktíðinni.
Loks vann Horsens 2-4 útisigur á VSK Aarhus. Ágúst Eðvald Hlynsson lagði upp fyrsta mark Horsens í leiknum fyrir Thor Lange.
Kjartan Henry Finnbogason fékk þá vítaspyrnu á 55. mínútu sem Casper Tengstedt skoraði úr. Bæði Ágúst og Kjartan léku allan leikinn.
Fyrr í dag fóru Ísak Óli Ólafsson, Aron Elís Þrándarson og Mikael Neville Anderson áfram með sínum liðum.
29. Så er der balance i regnskabet. Hlynsson med perfekt bold ind foran mål, hvor Lange header den ind (1-1) #vskach #sydbankpokalen
— AC Horsens (@AC_Horsens) November 11, 2020
Athugasemdir
                                                                
                                                        
 
        
 
         
    
 
                    
        
         
                 
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                            
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                        
                        
        
        
