Stórhljómsveitin Kaleo hefur sent frá sér færslu þar sem hún fagnar samstarfi sínu við Aftureldingu.
KALEO er mjög vinsæl hljómsveit sem hefur náð góðum árangri á Íslandi og þá sérstaklega utan Íslands. Merki Kaleo hefur verið á búningum Aftureldingu frá sumrinu 2021.
KALEO er mjög vinsæl hljómsveit sem hefur náð góðum árangri á Íslandi og þá sérstaklega utan Íslands. Merki Kaleo hefur verið á búningum Aftureldingu frá sumrinu 2021.
„Við erum ótrúlega stoltir af Aftureldingu sem mun leika í Bestu deild karla í fyrsta sinn næsta sumar," segir í færslu sem Kaleo birtir til ríflega 400 þúsund fylgjenda sinna á Instagram.
„Samstarf okkar við Aftureldingu hefur verið hvorki meira né minna en ótrúlegt og leitt fallega fólkið í heimabæ okkar, Mosfellsbæ, saman sem aldrei fyrr."
„Við getum ekki beðið eftir að sjá fleiri leiki, spila fleiri tónleika og halda Mosó andanum á lofti og búa til fleiri minningar. Áfram Afturelding."
Karlalið Aftureldingar komst upp úr Lengjudeildinni síðastliðið sumar og spilar í Bestu deildinni á næsta ári.
Hér fyrir neðan má sjá færsluna frá Kaleo.
Athugasemdir