Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 12. janúar 2020 22:08
Brynjar Ingi Erluson
Kjarnafæðismótið: Stórsigur Hattar/Hugins í Boganum
Eiríkur Þór Bjarkason skoraði þrennu
Eiríkur Þór Bjarkason skoraði þrennu
Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson
Höttur/Huginn 5 - 0 Kormákur/Hvöt
1-0 Eiríkur Þór Bjarkason ('7 )
2-0 Eiríkur Þór Bjarkason ('18 )
3-0 Brynjar Árnason ('20 )
4-0 Eiríkur Þór Bjarkason ('60 )
5-0 Heiðar Logi Jónsson ('76 )

Eiríkur Þór Bjarkason skoraði þrennu er Höttur/Huginn vann Kormák/Hvöt 5-0 í B-deild Kjarnafæðismótsins í Boganum í kvöld.

Eiríkur Þór, sem er fæddur árið 1995, skoraði tvö mörk á fyrstu átján mínútunum áður en Brynjar Árnason bætti við þriðja tveimur mínútum síðar.

Eiríkur fullkomnaði þrennu sína á 60. mínútu og Heiðar Logi Jónsson rak svo síðasta naglann í kistuna á 76. mínútu.

Lokatölur 5-0 og Höttur/Huginn með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leikina en Kormákur/Hvöt hefur aðeins spilað einn leik.
Athugasemdir
banner
banner