Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 12. janúar 2022 10:39
Elvar Geir Magnússon
Digne á leið í læknisskoðun í Birmingham
Lucas Digne.
Lucas Digne.
Mynd: EPA
Aston Villa hefur komist að samkomulagi við Everton um kaupverðið á franska bakverðinum Lucas Digne. Hann kostar 25 milljónir punda.

Chelsea, Newcastle og West Ham. sýndu Digne áhuga en Villa vann samkeppnina og Digne er á leið í læknisskoðun í Birmingham í dag.

Þegar er Digne búinn að gera munnlegt samkomulag um kaup og kjör.

Þetta er stór gluggi fyrir Villa sem tilkynnti í síðustu viku að félagið hefði fengið Phillipe Coutinho á láni frá Barcelona.

Það má búast við nokkrum staðfestum félagaskiptum í ensku úrvalsdeildinni í dag en Chris Wood, sóknarmaður Burnley, er á leið í læknisskoðun hjá Newcastle sem nýtti sér riftunarákvæði í samningi hans.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner