Stefán Jón Friðriksson leikmaður Keflavíkur er á leið á reynslu í Serie B á Ítalíu.
Hann heldur út til Ítalíu á næstu dögum og mun æfa með liði Conzenca Calzio.
Stefán sem er fæddur árið 2004 kom við sögu í einum leik á síðustu leiktíð er hann kom inná sem varamaður þegar 10 mínútur voru eftir í leik gegn KR í Keflavík.
Tilkynningin frá Keflavík
Stefán Jón Friðriksson til reynslu í Seriu B á Ítalíu 🙌
Stefán Jón er ungur miðjumaður sem fékk sín fyrstu tækifæri á seinasta tímabili og hefur fest sig í sessi í meistaraflokknum okkar. Stefán heldur út til Ítalíu á næstu dögum og mun æfa með liði Conzenca Calzio en þeir leika í næst efstu deild á Ítalíu.
Við óskum Stefáni góðs gengis ytra 🤝
Áfram Keflavík!
Athugasemdir