Fotbolti.net
12.02.21 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hlín, Sara og Viktor Andri framlengja við Fjölni

Sara Montoro

Sara Montoro

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Í vikunni skrifuðu þrír leikmenn undir hjá meistaraflokkum Fjölnis, tveir leikmenn við kvennalið félagsins og einn við karlaliðið.
Kvennamegin voru það þær Hlín Heiðarsdóttir og Sara Montoro sem skrifuðu undir samninga við félagið.

Karlamegin var það Viktor Andri Hafþórsson sem skrifar undir samning út tímabilið 2023. Öll þrjú eru sóknarsinnaðir leikmenn.

Hlín er elst þremenninganna, fædd árið 1999. Viktor er fæddur árið 2001 og Sara er fædd árið 2003.

Karlalið Fjölnis leikur í Lengjudeildinni á komandi leiktíð og kvennaliðið í 2. deild.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.