Fotbolti.net
12.02.21 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Smith: Barkley borgar fyrir nýja vatnsbrúsagrind

Ross Barkley.

Ross Barkley.

Canon

Mynd: Getty Images

Dean Smith, stjóri Aston Villa, segir að Ross Barkley muni greiða fyrir nýja vatnsbrúsagrind eftir pirring hans í leiknum gegn Arsenal um síðustu helgi.

Barkley var ósáttur þegar hann var tekinn af velli og lét vatnsbrúsagrind finna fyrir því.
„Þetta var pirringur því hann vildi endast í 90 mínútur," sagði Smith.

„Ég ræddi við hann eftir þetta. Ég vil ekki að leikmenn komi ánægðir af velli en hnan mun borga fyrir nýja vatnsbrúsagrind."

„Hann er búinn að ná heilli æfingaviku núna sem er gott fyrir hann. Hann hefur spilað sex leiki á 18 dögum sem sýnir fagmennsku hans og hugarfar."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.