Fotbolti.net
12.04.21 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Stórlið á eftir Lingard

Stórlið á eftir Lingard
Canon

Mynd: Getty Images

PSG, Inter og Real Madrid eru á meðal félaga sem eru að fylgjast með Jesse Lingard. ESPN segir frá þessu.

Lingard skoraði tvö mörk í 3-2 sigri West Ham á Leicester í gær.

Lingard hefur skorað átta mörk í níu leikjum síðan hann kom til Hamranna á láni frá Manchester United í janúar.
West Ham vill kaupa Lingard en ljóst er að félagið mun fá samkeppni um þjónustu hans.

Lingard er 28 ára gamall en hann á eitt ár eftir af samningi sínum við Manchester United.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.