Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 12. maí 2022 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Tók svipað fagn út í Lilleström þegar frumburðurinn kom"
Svona fagnaði Arnór.
Svona fagnaði Arnór.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Miðjumaðurinn Arnór Smárason hefur gert tvö mörk með Valsmönnum í Bestu deildinni í sumar.

Hann skoraði er liðið mætti FH í fjórðu umferð deildarinnar en fagn hans þar vakti nokkra athygli. Hann fékk bolta frá boltastráknum og setti hann inn fyrir treyju sína.

Eftir leikinn útskýrði Arnór fagnið er hann ræddi við fréttamann Fótbolta.net.

„Við kærastan eigum von á okkar öðru barni í október á þessu ári. Ég tók svipað fagn út í Lilleström þegar frumburðurinn kom og mér fannst flott augnablik að taka það líka núna," sagði Arnór.

Á meðfylgjandi mynd má sjá hvernig Arnór fagnaði og hér fyrir neðan má skoða viðtalið sem hann fór í eftir leikinn gegn FH síðasta föstudagskvöld.
Arnór Smára: Alltaf sárt en það er tvennt í stöðunni
Athugasemdir
banner
banner
banner