Fotbolti.net
12.08.18 - 18:36
Arnar Daði Arnarsson

Gunnar Heiðar samningslaus eftir tímabilið: Heyri kannski í öðrum liðum og sé hvað er í boði

Auglýsing
Gunnar Heiðar var á skotskónnum í dag.

Gunnar Heiðar var á skotskónnum í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði bæði mörk ÍBV í 2-0 sigri liðsins á FH í Hafnarfirðinum í dag.

Eyjamenn léku glimrandi vel í fyrri hálfleiknum og uppskáru tvö mörk. Allt annað að sjá liðið frá tapinu gegn Fylki á heimavelli í síðustu umferð.
„Við vorum ekki sáttir með okkar leik þar og okkur fannst við skulda bæði stuðningsmönnum og okkur sjálfum að gera þetta almennilega og við gerðum það í dag. Það er frábært að ná þessum þremur stigum.\"

„Við sjáum það að við erum með fínt lið og vitum hvað við getum. Við þurfum bara að gera það í hverjum einasta leik, það er næsta skref í þessu öllu saman. Við viljum kíkja upp töfluna og vonandi byrjar það núna. Við þurfum að halda áfram að byggja ofan á það sem við erum að gera og mér finnst vera stígandi í þessu hjá okkur. Næst er það Keflavík heima, það verður erfiður leikur.\"

Gunnar Heiðar er nú kominn með sex mörk í deildinni í sumar en hann er samningslaus eftir tímabilið.

„Ég vinn bara fyrir liðið og þeir sem fá færin þurfa bara að nýta þau og ég gerði það í dag. Ég er 36 ára núna og samningslaus eftir tímabilið. Maður verður kannski að fara heyra í öðrum liðum og sjá hvað er í boði,\" sagði markahrókurinn, Gunnar Heiðar að lokum.

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.