mán 12. ágúst 2019 20:56
Arnar Helgi Magnússon
Aubameyang vonar að Pepe fái að byrja fljótlega
Mynd: Getty Images
Nicolas Pepe lék sinn fyrsta leik fyrir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag þegar liðið sigraði Newcastle, 1-0.

Pepe byrjaði á varamannabekknum en kom inná í stað Reiss Nelson á 71. mínútu leiksins.

Pierre-Emerick Aubameyang skoraði sigurmark Arsenal í leiknum en hann segist spenntur fyrir því að spila með Nicolas Pepe í búningi Arsenal.

„Hann er frábær leikmaður og ég get ekki beðið eftir því að spila fleiri leiki með honum," sagði Aubameyang eftir leikinn.

„Hann hefur sýnt það á æfingum að hann er fær um að gera stórkostlega hluti með boltann og ég er sannfærður um að hann eigi eftir að standa sig vel. Ég vona að hann fari að byrja leiki mjög fljótlega," sagði Auba að lokum.

Arsenal mætir Burnley í ensku úrvalsdeildinni á laugardag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner