Fotbolti.net
12.10.19 - 13:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ekki pláss fyrir Saka í klefanum hjá Arsenal

Saka ásamt Freddie Ljunberg.

Saka ásamt Freddie Ljunberg.

Canon

Mynd: Getty Images

Hinn ungi Bukayo Saka hefur farið vel af stað hjá Arsenal í upphafi leiktíðar. Hann hefur nú þegar komið að fjórum mörkum, skorað eitt og lagt upp þrjú, í sex leikjum í öllum keppnum. Hann hefur verið í byrjunarliði Arsenal í síðustu þremur leikjum liðsins.

<i>Mirror</i> segir frá því að Saka sé ekki kominn með pláss í aðalliðsklefa Arsenal á æfingasvæði liðsins.
Venjan hjá Arsenal er sú að ungir leikmenn verða að vinna sér inn sitt pláss í aðalliðssklefanum og hlýtur að styttast í það hjá Saka.

Saka hefur verið borinn saman við Nicolas Pepe sem kom á metfjárhæð til Arsenal í sumar. Einhverjir stuðningsmenn eru á þeirri skoðun að Saka eigi að eiga sæti í liðinu á kostnað Pepe ef valið stendur á milli þeirra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.