Liam Cooper og Diego Llorente, miðverðir Leeds, hafa báðir meiðst í verkefnum með landsliðum sínum undanfarna daga.
Llorente er búinn að draga sig úr spænska landsliðshópnum vegna meiðsla.
Sömu sögu er að segja af Cooper en hann hefur dregið sig úr skoska landsliðinu fyrir leik gegn Tékkum.
Llorente er búinn að draga sig úr spænska landsliðshópnum vegna meiðsla.
Sömu sögu er að segja af Cooper en hann hefur dregið sig úr skoska landsliðinu fyrir leik gegn Tékkum.
Cooper er fyrirliði Leeds og lykilmaður en Llorente á ennþá eftir að spila sinn fyrsta leik síðan hann kom frá Real Sociedad á 18 milljónir punda í sumar.
Næsti leikur Leeds í ensku úrvalsdeildinni er gegn Wolves eftir viku.
Athugasemdir