Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 12. nóvember 2021 09:22
Elvar Geir Magnússon
Orri Steinn kallaður inn í U21 í stað Stefáns Árna
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Stefán Árni Geirsson, leikmaður KR, getur ekki tekið þátt í komandi leikjum U21 landsliðsins, gegn Liechtenstein og Grikklandi, vegna meiðsla.

Orri Steinn Óskarsson hefur verið kallaður inn í hópinn í hans stað.

Orri er sautján ára gamall og hefur raðað inn mörkum fyrir unglingalið danska félagsins FCK.

Sjá einnig:
Styttist í að Orri fái tækifæri með aðalliði FCK

U21 árs landsliðið spilar við Liechtenstein klukkan 14:00 í dag á Sportpark Eschen-Mauren-leikvanginum.

Ísland er með 4 stig í riðlinum en liðið mætir botnliðinu. Liechtenstein hefur ekki skorað mark í fyrstu leikjunum og er með markatöluna 0:34.

Þú getur fylgist með gangi mála hér á Fótbolta.net í dag.
Athugasemdir
banner
banner