Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 13. janúar 2022 14:00
Elvar Geir Magnússon
Börsungar ekki vissir um Yusuf Demir og skiluðu honum
Mynd: EPA
Barcelona hefur skilað Yusuf Demir aftur til Rapid Vín en þessi átján ára leikmaður kom til Börsunga á lánssamningi fyrir þetta tímabil. Klásúla var um möguleg kaup.

Vængmaðurinn lék aðeins sex leiki í La Liga, níu í öllum keppnum, og einn leikur í viðbót hefði virkjað ákvæði um 10 milljóna evra kaup.

En forráðamenn Barcelona eru ekki sannfærðir um Demir og ákváðu að rifta samkomulaginu. Demir snýr því aftur til Rapid Vín.

Spurning hvað næsta skref hjá táningnum verður en stór félög í Þýskalandi hafa áhuga á honum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner