Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 13. febrúar 2021 05:55
Aksentije Milisic
Þýskaland í dag - Tekst Dortmund að rétta úr kútnum?
Mynd: Getty Images
Það fara fram fimm leikir í þýska boltanum í dag og þarf af eru fjórir af þeim klukkan 14:30.

Bayer Leverkusen fær Mainz í heimsókn en Bayer er í mikilli baráttu um Meistaradeildarsæti. Mainz er sem stendur í næst neðsta sæti deildarinnar.

Á sama tíma mætast Stuggart og Hertha Berlin og þá heimsækir Freiburg lið Werder Bremen.

Dortmund, sem hefur verið að gefa mikið eftir upp á síðkastið, fær Hoffenheim í heimsókn. Ljóst er að heimamenn þurfa nauðsynlega á þremur stigum að halda vilji liðið berjast um sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili.

Kvöldleikurinn er viðureign Union Berlin og Schalke 04.

Þýskaland: Bundesliga
14:30 Bayer - Mainz
14:30 Stuttgart - Hertha
14:30 Werder - Freiburg
14:30 Borussia D. - Hoffenheim
17:30 Union Berlin - Schalke 04
Athugasemdir
banner
banner
banner